Kosningar til heimastjórna - samantekt
Ert þú að kjósa í heimastjórn í fyrsta skipti? Hér er samantekt á upplýsingum um heimastjórnir og kosningarnar til þeirra í stuttu máli.
Hver eru í framboði til heimastjórna?
Allir íbúar 18+ eru í framboði og hægt er að kjósa um þá alla. Hér er listi yfir þau sem gefa sérstaklega kost á sér.
Á ég að kjósa í allar heimastjórnirnar?
Nei, þú kýst bara í heimastjórn þess svæðis sem þú býrð á. Ef þú býrð á Bíldudal kýstu bara í heimastjórn Arnarfjarðar, ef þú býrð á Tálknafirði kýstu bara í heimastjórn Tálknafjarðar og svo framvegis.
Hvað kýs ég marga einstaklinga?
Þú kýst einn einstakling í þína heimastjórn.
Hvað skrifa ég á kjörseðilinn?
Þú skrifar fullt nafn og heimilisfang þess sem þú kýst. Á hverjum stað er kjörskrá með lista yfir öll sem eru kjörgeng.
Hvað eru mörg í heimastjórn?
Í hverri heimastjórn eru þrír fulltrúar, þar af tveir kosnir í heimastjórnarkosningum og einn valinn af bæjarstjórn.
Hvenær á ég að kjósa á kjördag?
Kjördagur er laugardaginn 4. maí, kjördeild opnar kl. 10:00 á Patró og Tálknafirði en kl. 12:00 á Bíldudal og Krossholtum.
Ákveðnar reglur gilda um hvað kjörstaðir mega vera opnir lengi, en það verður að minnsta kosti átta klukkutímum frá því að kjörfundur hófst en ekki síðar en kl. 22:00. Það þýðir að kjörfundi verði slitið á bilinu kl. 18:00 til kl. 22:00 á Patró og Tálknafirði, en á bilinu kl. 20:00 til kl. 22:00 á Bíldudal og Krossholtum.
Kjörfundi má þó slíta er allir sem á kjörskrá standa hafa greitt atkvæði og eftir fimm klukkustundir ef öll kjörstjórnin og umboðsmenn eru sammála um það, enda sé þá hálf klukkustund liðin frá því að kjósandi gaf sig síðast fram.
Má ég kjósa?
Hér getur þú flett upp hvort þú sért á kjörskrá.
Hvað eru heimastjórnir?
Hér má lesa nánar um heimastjórnir. Fjórar heimastjórnir verða starfandi í sveitarfélaginu:
- Heimastjórn Arnarfjarðar
- Heimastjórn Tálknafjarðar
- Heimastjórn Patreksfjarðar
- Heimastjórn Rauðasandshrepps og Barðastrandar
Markmiðið með heimastjórnum er að heimamenn hafi aðkomu að ákvörðunum sem varða nærumhverfi sitt og geta ályktað um málefni sem snýr að viðkomandi byggðarlagi og komið málum á dagskrá bæjarstjórnar.
Hvar á ég að kjósa á kjördag?
Hér getur þú flett upp hvar þú átt að kjósa.
Ég kemst ekki að kjósa á laugardaginn 4. maí, hvað geri ég þá?
Þá kýst þú í ráðhúsi Vesturbyggðar að Aðalstræti 75, Patreksfirði á opnunartíma. Síðasti dagur til að kjósa fyrir laugardaginn er á föstudaginn 3. maí.
Opnunartímar ráðhússins:
mánudaga-fimmtudaga: kl. 10:00-12:30 og kl. 13:00-15:00
föstudaga: kl. 10:00-13:00
Athugið að utankjörfundaratkvæðagreiðsla í sveitarstjórnarkosningum fer fram annars staðar. Sjá meira um það hér.
Ég bý á Rauðasandi, kýs ég til heimastjórnar í Birkimel eða á Patró?
Á Patró í félagsheimilinu, líkt og í sveitarstjórnarkosningum.
Spurningum mínum er enn ósvarað
Á þessari síðu má finna upplýsingar um flestallt er viðkemur heima- og sveitarstjórnarkosningum, sameiningunni og fleira.
Hægt er að senda fyrirspurnir á sameining@vesturbyggd.is. Þá má einnig hringja í ráðhús Vesturbyggðar á opnunartíma í síma 450 2300 eða á skrifstofu Tálknafjarðarhrepps á opnunartíma í síma 450 2500. Einnig má senda skilaboð á Vesturbyggð á Facebook.